21.3.2007 | 18:08
Við höfum það gott!
Hér á íslandi er gott að vera, það er næg vinna og flestir hafa tækifæri til að mennta sig í því sem þeir vilja.
Stundum þegar manni líður e-h illa eða er að vorkenna sjálfum sér sér maður ekki alltaf hvað er gott að vera hérna á islandi. Mér kemur í huga textabrot úr laginu rangur maður á röngum stað þegar sjálfsvorkuninn er að fara með hann og hann spyr einhversstaðar í laginu ''ætli það sé skárra í simbabwe''
Bara það að hafa þak yfir höfuðið, mat á disknum og vinnu er meira en margir jarðarbúar hafa...
Það er gott að vera á íslandi....
Þótt það sé vont veður úti.
Kveðja,
Einar Jónsson
Heimasíða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.3.2007 | 15:16
Húmor.
Eg fór á árshátíð hjá háteigsskóla í gær og var það svaka gaman, vorum í litla salnum á broadway, kennarar og annað starfsfólk. Allveg er magnað hvernig húmor virkar og hvernig húmor fólk notar við mismunandi aðstæður. Eins og veislustjórinn í gær notaði mjög barnalegan húmor og víxlaði orðum svo út kom e-h sem öllum átti að finnast fyndið, eitthvað sem virkar fyrir margmenni.
En mér fannst þetta ekkert fyndið...
Kveðja,
Einar Jónsson
Heimasíða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.3.2007 | 17:32
Búinn að vera veikur.
Eg er búinn að vera hálf slappur síðustu daga og hef því lítið geta gert en er allur að koma til.
Eg fór á hljómsveitaræfingu í gær og misstum við okkur í spilagleðinni, svaka stuð og fjör! Við erum að fara hittast oftar og finpússa prógrammið okkar svo við getum nú einhverntímann farið að halda tónleika.
Kveðja,
Einar Jónsson
Heimasíða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.3.2007 | 19:57
helgin allveg að koma.
Það voru 2 að hætta í ræstingunum upp í skóla og var okkur skólaliðum boðið að skipta þeirri vinnu á milli okkar sem mjög gott mál, fínt að fá smá yfirvinnu.
Það er ein í öðrum bekk sem er svona í hálfgerðu uppáhaldi hjá mér. Hún segir alltaf að ég sé bestasti stóri vinur hennar og síðan springur hún úr kátínu. Eg verð að segja að þetta er það skemmtilegasta sem ég hef starfað við lengi.
Meira seinna.
Kveðja,
Einar Jónsson
Heimasíða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.3.2007 | 20:17
Vorið er á næsta leyti!
Eins og sást á veðrinu hérna í rvk í morgun mætti halda að vorið væri komið og sumarið handan við hornið. ''it´s a beautiful day'' eins og bono söng.
Svifrik er alvarlegt vandamál og ef enginn er vindurinn hleðst þetta upp allstaðar og getur valdið öndunarfærasjúkdómum. Maður ætti kanski bara að fá sér svifrykssíu á alla glugga svo maður bæti ekki gráu ofan á svart, verandi reykingarmaður og búa við laugaveginn...
Annars er ég voða tómur í hausnum núna og ætla að segja þetta gott.
já, og boltakallar góða skemtun í kvöld, er voða lítið í þessu sjálfur en skilst að það sé e-h mikilvægur leikur núna.
Ciao, a presto!
Skoðið endilega heimasíðuna mína!
Kveðja,
Einar Jónsson
Heimasíða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.3.2007 | 17:35
Einar sprækur!
Vaknaði úthvíldur í morgun og fór að vinna sem er ágætis tilbreyting frá þessu svefnleysi sem eg virðist vera búinn að vera með smá vott af (sérstaklega á virkum dögum) en allt komið í lag núna
Eg fór í gærkvöld að sjá ''allt og ekkert'' hjá leikkélagi Kópavogs og er óhætt að mæla með því! fínasta skemmtun! þetta er svona kaffiboðs fílingur frá miðri síðustu öld, gamaldags sófar og lampar. teppi og kertaljós. Síðan sitja áhorfendur með leikurunum á meðan þeir segja sögur.
Hljómsveitaræfing og yoga í kvöld. Eg hlakka til!
þar til næst,
Kveðja,
Einar Jónsson
Heimasíða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.3.2007 | 23:10
Rólegur dagur.
Rólegur dagur í dag, lítið búið að gerast. Eg fór að sjá the last king of scottland áðan og verð að segja að þetta er meira svona mynd sem maður horfir á á dvd. Annars er voða lítið að gerast svo eg ætla að slaka á fyrir framan imbann.
Kveðja,
Einar Jónsson
Heimasíða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.3.2007 | 22:20
Vinnuvikan búinn!
''Gleði og hamingja!!'' Komin föstudagur og helgin framundan. Hvað skal gjört, hvað skal gjört. Það má guð vita (enda mín mál best geymd í hans höndum )
Eg fylgdi krökkunum í skólasund í dag, eins og alltaf á föstudögum, og mér til mikillar gleði voru þau stillt og prúð í rútunni og dagurinn leið hratt!
Eg kom svo heim eftir vinnu og hlustaði á eitt podcast með Gareth Emery sem er einn heitasti dj-inn í dag. Bara snilld!
Kvöldið framundan. Best að fara og reyna að eignast eitthvað líf.
Kveðja,
Einar Jónsson
Heimasíða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.3.2007 | 19:17
Hvað er með þennan kulda.
Jæja, sit hérna heima og hlusta á Elliott smith, mér líður illa og það er gott fílingur hjá smitharanum enda vita flestir hvernig fór fyrir honum. Eg er að hlusta á fyrstu plötuna hans þessa dagana og er hún allveg sæmileg, jafnast að vísu ekki á við XO plötuna hans sem er hans besta að mínu mati
Eg er búinn að vera í matarátaki síðustu daga sem gengur bara vel og eru nokkur kg farinn. sáttur með það annars er þetta ekki spurning um að grennast, hef gert það oft áður, heldur grennast og þyngjast ekki aftur lol
Börnin í vinnunni voru frekar óþekk í dag og er eg þar af leiðandi frekar þreyttur núna.
Rólegt kvöld fram undan...
Þar til næst.
Kveðja,
Einar Jónsson
Heimasíða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.2.2007 | 17:36
útborgað á morgun og drengurinn sáttur!
Fékk launaseðlana í pósti í dag og fékk meira en ég bjóst við! Alltaf gott að vera til á þessum tíma mánaðar
Eg var að byrja að bassast í nýrri hljómsveit á dögunum og þarf aðeins að blása rykið af bassaleiknum, hef ekki spilað með öðrum síðan ofurbandið Morfín var og hét. það voru ótrulega góðir tímar, lentum í 2. sæti í riðlinum á músiktilraunum 2000! og gerðum 7 laga demó plötu sem komst í smá dreifingu og urðum við vinsælir í undergroundinu á sauárkróki fyndið að huxa til þess.
Sahaja yoga er adferð af hugleiðslu til að öðlast kundalini vakningu og lifa í meira jafvægi og er ég búinn að stunda það daglega síðustu 8 mánuði og hef aldrei liðið betur. Frábær aðerð til að öðlast innri ró og vellíðan og það besta er að það er allt ókeypis!
í kvöld ætla ég á hljómsveitar æfingu og í jógatíma.
þar til næst,
Kveðja,
Einar Jónsson
Heimasíða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Einar Jakob Jónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar